Bílaapótek er nýlunda á Íslandi og líklega í Evrópu. Aftur á móti er þessi tegund af apótekum mjög algeng í Bandaríkjunum.
Þó apótekið sé nefnt bílaapótek þá er það einnig venjulegt apótek. Hægt er að leggja bílnum við framhlið hússins og ganga inn í rúmgott hefðbundið apótek sem opið er alla virka daga kl. 10–18.
Hinn möguleikinn er að aka bílnum að lúgu og fá afgreiðslu beint í bílinn en þar er opnunartíminn mun rýmri eða 10–23 alla daga vikunnar. Á báðum stöðum er gefinn kostur á ráðgjöf lyfjafræðings. Lúgan gefur ýmsa möguleika sem henta vel í nútímaþjóðfélagi. Ekki þarf að eyða tíma í að finna bílastæði og ganga langan veg til að komast í apótek. Hægt er að fá afgreiðslu strax eða koma með lyfseðil t.d. að morgni og sækja lyfin á leiðinni heim. Einnig er mjög hentugt og tímasparandi að láta lækninn senda lyfseðilinn rafrænt og eru þá lyfin tilbúin til afgreiðslu þegar viðskiptavinurinn kemur, hvort sem er í lúgu eða í verslun. Lúgan hentar t.d. hreyfihömluðum, fólki með börn í bílnum o.s.frv.
Kostir lúguapóteks eru að fólk getur fengið hraða afgreiðslu án mikillar fyrirhafnar.