1 Lyfjaval
Árið 1996 tóku í gildi ákvæði nýrra lyfjalaga sem tryggðu frelsi í stofnun og rekstri lyfjabúða. Fyrir þessa breytingu höfðu apótekin skipt með sér markaðssvæðum og yfirvöld höfðu úthlutað lyfsöluleyfum. Þessi lagabreyting hafði mikil áhrif á lyfjamarkaðinn, í eldra umhverfinu var nánast engin samkeppni og lyfjaverð það sama í öllum lyfjaverslunum. Núverandi umhverfi og markaður býður upp á meiri fjölbreytni í þjónustu apótekanna og lyfjaverð hefur lækkað. Álagning á lyf í smásölu hefur lækkað um 40% frá því lyfjaverslun í smásölu var gefin frjáls. Fyrsta apótekið sem opnaði eftir að nýju lyfjalögin tóku endanlega gildi 15. mars 1996 var Apótek Suðurnesja, sem opnaði 8. apríl 1996. Apótek Suðurnesja var selt til Lyfju í október 2002. Í mars 2003 stofnuðu eigendur Apóteks Suðurnesja þau Þorvaldur Árnason og Auður Harðardóttir Lyfjaval.
Í apríl árið 2003 var fyrsta apótek Lyfjavals opnað í Mjódd, Lyfjaval í Hæðasmára opnaði árið 2005 og Lyfjaval í Álftamýri opnaði árið 2006. Meginmarkmið Lyfjavals er að lækka lyfjaverð og veita viðskiptavinum sínum góða ráðgjöf og persónulega þjónustu. Það er stefna Lyfjavals að starfsemi og þjónusta uppfylli ávallt væntingar viðskiptavina og að fyrirtækið skili ávallt umsömdum gæðum á þeim tíma sem um er samið. Fyrirtækið leggur áherslu á fjölbreytt vöruúrval og nýjungar viðskiptavinum til hagsbóta, en einnig er það mikilvægur þáttur í stefnu Lyfjavals að nota ekki ímynd apóteksins til að pranga út gagnslausum vörum. Lyfjaval leggur mikla áherslu á að þjónusta við viðskiptavini sé meiri en í hefðbundnum apótekum og gerir fyrirtækið þeim viðskiptavinum sínum sem eiga við hreyfiörðugleika að stríða kleift að sækja lyfin sjálf í apótekið og ræða persónulega við lyfjafræðing með tilkomu bílaapóteksins. Allir viðskiptavinir Lyfjavals hafa greiðan aðgang að lyfjafræðingi þar sem hann getur veitt viðskiptavinum markvissar upplýsingar um val á lyfjum og um notkun þeirra. Lyfjaval býður einnig upp á ókeypis lyfjaskömmtun fyrir einstaklinga sem þurfa að taka margar tegundir af lyfjum á dag.
1.1 Bílaapótek
Lyfjafyrirtæki eru bundin ákveðnum böndum vegna reglugerða og ákvæða frá íslenska ríkinu. Því eiga þau erfiðara með að boða nýjungar í starfi eða skapa sér sérstöðu á markaðinum líkt og Lyfjaval hefur gert með tilkomu Bílaapóteksins í Hæðasmára. Bílaapótekið sem opnaði í febrúar 2003 er nýung í Evrópu en bílaapótek eru algeng í Bandríkjunum. Hægt er að aka bílnum að lúgu og fá lyfin afgreidd beint í bílinn. Bílaapótek hentar vel í nútímaþjóðfélagi, ekki þarf að eyða tíma í að finna bílastæði og afgreiðslan er hröð. Með tilkomu bílaapóteksins vilja eigendur leggja meiri áherslu á þjónustu en gert er í hefðbundnum apótekum þar sem bílalúgann hentar vel þeim sem hafa lítinn tíma aflögu, fólki með ung börn og hreyfihömluðum. Nú geta allir sótt lyfin sín sjálfir í apótekið og rætt persónulega við lyfjafræðing um val á lyfjum og notkun þeirra.
1.2 Rafrænir lyfseðlar
Fyrir nokkrum árum hófst vinna við svokallaða rafræna lyfseðla, þar sem læknar senda lyfseðlana rafrænt til lyfjaverslana. Þessi nýjung var tekin í notkun vorið 2009 á öllum heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið með rafrænum lyfseðlum er að auka öryggi í útgáfu lyfseðla og koma í veg fyrir lyfseðlafölsun. Rafrænir lyfseðlar auðvelda samskipti milli lækna og lyfjafræðinga og bjóða þann kost að lyfin séu tilbúin þegar einstaklingur kemur á staðinn. Bílaapótek Lyfjaval gefur sínum viðskiptavinum kost á því að hafa lyfin tilbúin þegar þau eru sótt.
1.3 Karitas
Vorið 2005 undirrituðu Lyfjaval og hjúkrunarþjónustan Karitas samning um þjónustu við sjúklinga með illkynja sjúkdóma í heimahúsum. Samningurinn er samkomulag um þjónustu við sjúklinga þar sem farið er að landslögum um starfsemi heilbrigðisstétta og reglum Lyfjastofnunar ríkisins um gerð og afgreiðslu lyfseðla, dreifingu lyfja og lyfjagjöf í heimahúsum. Samningurinn gerir hjúkrunarfræðingum sem starfa innan hjúkrunarþjónustu Karitas kleift að hringja í Bílapótek Lyfjavals og óska eftir ákveðnum lyfjum skv. ordinations-lista fyrir einstaka sjúklinga.
1.4 Stefna og hlutverk
Lyfjaval leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarksverði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.
1.5 Gildi
Fagmennska :
Hjá Lyfjaval starfa sérfræðingar sem leitast við að aðstoða og þjónusta viðskiptavini Lyfjavals eftir bestu getu.
Nærgætni:
Starfsfólk sýnir viðskiptavinum nærgætni, þar sem þeir þurfa oft að glíma við og ræða við starfsfólk um persónuleg og erfið mál.
Heiðarleiki:
Starfsfólk leitast við að upplýsa viðskiptavini um notkun lyfja og annars varnings.
1.6 Opnunartímar
Bílaapótek Lyfjavals er opið kl. 10.00–23.00 alla daga vikunnar.
Lyfjaval í Mjódd er opið kl. 09.00–18.30 alla virka daga og á laugardögum kl. 12.00–16.00.
Lyfjaval í Álftamýri er opið alla virka daga kl. 09.00–18.30.
1.7 Markmið í gæðamálum
Almenn markmið:
- Að afhenda ávallt umsamin gæði án frábrigða eða galla.
- Að afhenda viðskiptavinum vöruna á umsömdum tíma, ef það næst ekki er haft samband við viðskiptavini og samið um nýjan afhendingartíma.
- Að gera hlutina rétt frá upphafi í allri starfsemi fyrirtækisins.
- Að vörur fyrirtækisins hafi trausta ímynd sem gæðavara.
Nánar útfærð markmið:
- Engar villur í afgreiðslu lyfseðla.
- Afgreiðsla lyfseðla framkvæmd á sem skemmstum tíma en alls öryggis gætt um leið.
- Vinnubrögð höfð nákvæm.
- Markvisst pöntunarkerfi á lyfjum og vörum.
- Vörufrágangur og færsla skráa framkvæmd samkvæmt settum reglum.
- Góð ráðgjöf og leiðbeiningar til viðskiptavina um notkun lyfja og annarra vara.
- Veita góða þjónustu og mæta þörfum viðskiptavina.